Á hverfanda hveli

Thirty is the new twenty-five

27. maí 2009

Strákarnir stækka

Allt í einu eru strákarnir orðnir svo stórir. Kjartan Sveinn að verða 7 ára og það hefur svo sannarlega verið staðfest að mamman er að missa statusinn.
Hann kvartaði sáran síðasta daginn í bústaðnum af því hann saknaði svo vina sinna. Hmmm ma og pa ekki nógu skemmtileg sem sagt?
Í gær kom hann heim frá afa og ömmu kl. 18 og vildi þá strax rjúka til Sigga. Aðeins að kíkja á hann.. og ég var alveg hissa - viltu ekki koma upp með mömmu sinni gúgúgú - er mamma ekki líka skemmtileg? Svipurinn á barninu sagði allt og hann hristi hausinn og sagðist virkilega þurfa að hitta vin sinn. Hann brosti samt alveg og fattaði grínið enda alveg stórkostlega fyndið af mömmunni að halda að hún sé skemmtilegri en félagarnir. Mamman sem segir honum að læra heima og taka til!
 
Í morgun sagði hann okkur frá heimavinnu - hvað þætti honum verst ef hann væri blindur? hann sagði að þurfa að nota blindrastaf. En hvað þætti honum verst við að heyra ekki? Nú að heyra ekki í Sigga vini sínum!!!
 
Auðvitað :-)
 
Nú ætla ég markvisst að reyna að ná honum aftur - vera öfga skemmtileg og flippuð. Hætta að bögga hann og segja honum æðislega bull brandara og vitna í Ladda show-ið og Mr. Bean eins og mér væri borgað fyrir það...
Eða bara að leyfa honum að njóta þess að eiga svona góða og skemmtilega vini.
 
Bjarki Freyr verður 3ja ára í júlí. Hann er nú þegar farinn að skipuleggja afmælið og mikilvægast er að hafa KÖKU. Annars er hann mjög líbó á gestalistanum. Taldi bara upp þessa helstu - mömmu (er enn með nr.1 status hjá honum veiii), pabba, Kjartan Svein, Sigga, afa og ömmu og Radmilu (leikskólakennarinn sem hann dýrkar - held hún sé á hælunum á mér í 2. sæti í vinsældum).
Hann kom með fyrsta gullkornið í gær. Vorum að keyra framhjá gröfu og tókum eftir því að gröfukallinn var farinn. Bjarki sagði þá: Hann er hættur í vinnunni í dag.... (já sögðum við KS) og svo bætti hann við... farinn heim að laga til!
Það er nákvæmlega það sem pabbar og gröfukallar gera þegar þeir eru búnir að vinna. Fara heim og laga til.
 
Jebbbs. Bara gaman að þessum yndislegu drengjum (mamman ekkert að spara yndislegheitin á fallegum degi mússi múss vemma stemma).

25. maí 2009

Testing

Aðeins að prófa nýjan fítus.
Gaman að þessu blogger.

2. maí 2009

Samtal hjóna

GFS: sumt fólk stoppar bara ekki. Er alltaf að gera eitthvað. Taka til eða fara eitthvað. Stoppar ekki - án gríns.

GB: Já það er ekki við.... svo langt frá því. Því miður..

Ég vildi að ég væri svona fólk sem stoppar ekki. Fór samt út að labba í morgun og fékk mér grænan heimatilbúin djús. Solla hnetu lover mælir með þessu og ég varð að prófa og sjá hvort ég yrði nú ekki óstöðvandi. Fór beint og lagði mig. Mikil átök að búa til drykkinn og þrífa svo eftir mig.

Annars er ég alveg dugleg líka - núna að vinna heimaverkefni sem ég á að skila á mánudaginn. Í gær tókum við skápa í gegn. Reyndar ryksugaði ég í dag og setti í eina vél. Það þarf enn að skúra og setja í svona 5 vélar til viðbótar. Svona er þetta ef maður er ekki þessi óstöðvandi týpa. Kannski ef ég fæ mér aðeins meiri heimalagaðan djús?

24. apríl 2009

Vonbrigði

Ég viðurkenni að mér leið ekki illa í góðærinu. Ég tók ekki þátt af heilum hug og var svo sem bara meðalmanneskja með undir meðallaun og námsmaður. Mér fannst samt gaman og gott að vita til þess hvað fólkinu í kringum mig gekk vel. Við liðum ekki skort og höfðum það mjög gott á ýmsum mælikvörðum... og höfum enn.

Þegar allt fór að hrynja fann ég fyrir stressi, kvíða og örvinglan. Samt var ég ekki með vinnu - þannig að ég gat ekki misst hana, og ekki átti ég hlutabréf og ég var ekki með erlend myntkörfulán. Það sem veldur kvíðanum og stressinu er að Ísland breyttist á einni nóttu og það er bara hrikalega erfitt að feisa það.

Margir halda því fram að hrunið verði til góðs. Að gömul og góð gildi verði aftur í hávegum höfð. Ég upplifi ekki endurkomu góðra og gamalla gilda. Ég upplifi mikla sundrung, reiði og kvíða.

Ég sjálf efast um allt og alla. Allir eru svikarar og lygarar. Sérstaklega þeir sem með völdin fara, stjórnmálamenn, háttsettir embættismenn og bankastjórar. Tilfinningarnar eru stórar og miklar og erfiðar að eiga við.

Mig langar svo að vera jákvæð og bjartsýn fyrir hönd okkar allra. Ég gríp allar góðar og jákvæðar fréttir og gleðst.. í svona 5 mín. því þá er aftur komið eitthvað hneyksli upp á borðið og tal um að Ísland hrynji aftur ómar um allt. Hvernig getur land sem er í rúst rústast meira?

Hræðsluáróður, kolsvartar efnahagsspár, svartsýni og neikvæðni.

Og hvað á að kjósa?

Ef einhver reynir að vera jákvæður og bjartsýnn er hann barnalegur og jafnvel að reyna að hylma yfir.
Ef einhver er svartsýnn og að eigin mati raunsær er hann að eyðileggja fyrir Íslandi.
Ef einhver segir satt um stöðu mála er hann ekki að segja allt og ekki allt satt.

Þeir sem vilja álver eru að hugsa um þjóðarhag og að koma á atvinnu á ný á kostnað náttúrunnar og framtíðar landsins.
Þeir sem er á móti álverum er sjálfselskir náttúrufasistar sem vita ekkert hvernig það er að búa úti á landi.

Þeir sem vilja ESB vilja bjarga Íslandi en aðallega vilja þeir komast til Brussell og eru að hugsa mest um eigin hag.
Þeir sem eru á móti ESB vilja bjarga Íslandi og halda auðlindunum og völdunum hér heima og eru að hugsa mest um eigin hag.

Ég vil vernda náttúruna, byggja upp ný atvinnutækifæri, fá stöðugan gjaldmiðil, standa vörð um hag þjóðar og auðlindir, öflugt menntakerfi, sanngjarnt heilbrigðiskerfi, jafnrétti og jafnræði, bjarta framtíðarsýn og samstöðu. Ég er barnalegur þjóðernissinni og svikari við land mitt með kratalegar vonir og kommónista væntingar. GOD!!!

Það er mér mikil vonbrigði hversu erfitt ég á með að ákveða mig. Það eru mér mikil vonbrigði hversu sundurlynd og reið þjóðin er. Það eru mér mikil vonbrigði hvernig stjórnmálamenn, bankastjórar og háttsettir embættismenn hafa svikið heila þjóð. Það eru mér mikil vonbrigði að ungt fólk gat fengið 4 milljóna króna myntkörfulán til að kaupa bíl - 100% lán. Það eru mér mikil vonbrigði að geta ekki treyst á krónuna. Það eru mér mikil vonbrigði hvernig sukk og svínari virtist vera í lagi lengi vel á Íslandi. Það eru mér mikil vonbrigði að sama fólkið vill aftur upp á dekk og sér ekki villu síns vegar. Það eru mér mikil vonbrigði að geta ekki fundið neitt svar við öllum spurningunum og fá enga von frá duglitlum skömmustulegum samviskubitnum stjórnamálamönnum.

11. apríl 2009

Tóti tannálfur mætti á svæðið

Á Skírdag kom Una vinkona í heimsókn og í ljós kom að þau voru bæði með lausa tönn og nákvæmlega sömu tönn. Þau ræddu þessi mál og önnur á meðan þau flettu bókinni World War II (discover the war that shaped the modern world - and the history of this global conflict) og Urður hljóp um með hríðskotabyssu, pabba hennar til mikillar ánægju. Bjarki slefaði á Tjörva og snýtti sér í bindið hans (af þvi að hann hló svo mikið af T sem er alveg í uppáhaldi þessa dagana) á meðan Hekla lét til sín taka þar sem þörf var á. Svo sló hún flötum lófanum í borðið og öskraði hátt á pabba sinn þegar hann vildi ekki hlýða - en ekki hvað?

Þessi stund var góð en dagurinn átti bara eftir að verða betri.

Una hringdi í KS um kvöldið og sagði honum stórfréttir um tönnina sem hafði verið kippt út nokkrum mín. áður. KS var skiljanlega mjög spenntur en sagðist einnig vera mjög smeykur. Þau ræddu saman góða stund þar sem Una hughreysti vin sinn og sagði honum að hún skildi hann vel. Hún hafði líka verið hrædd við þetta en hann yrði að treysta henni - þetta var ekkert svo vont! Hún gaf honum góð ráð og hann bætti inn í þegar við átti: Una - þú veist bara ekki hvað ég er viðkvæmur. Una svaraði þá - jú Kjartan Sveinn ég veit það - ég var svona líka. KS hélt þá áfram. Já en Una - að missa tönn er ekki barnaleikur fyrir mér.... Og endalaust ræddu þau stóra tannmálið þar sem KS gerði mikið úr hræðslu sinni en Una stappaði í hann stálinu.

Hálftíma síðar var tönn KS tekinn líka. 09.04.09 misstu Una og KS tennurnar sínar. Bæði algjörar hetjur og snillingar.

KS skrifaði tannálfinum bréf:

Kæri Tóti tannálfur!

Ég, Kjartan Sveinn, er búinn að láta pabba kippa í tönnina.
Þetta var eins og að fá horn á nauti í sig.
Ég vona að þú hafir aðstoðarmenn. Þetta er fyrsta barnatönnin mín.
Bið að heilsa Unu.
Þinn Kjartan -

svo bað hann um 4 10 kr. og uppskar að sjálfsögðu vel.

31. mars 2009

Það sjá allir í gegnum þetta

Var í hressandi hádegismat heima hjá foreldrum mínum.

Farið var yfir ríkisstjórnina - sem er ekki að gera neitt að viti, ekki að koma neinum mikilvægum málum í gegn og það sjá allir í gegnum þetta.
Farið var í skuldirnar - lífeyrissjóðirnir búnir að tapa milljörðum, krónan verðlaus og ræddar voru hugmyndir um að selja gull og skartgripi. Sú hugmynd felld þar sem krónan er jú verðlaus.

Farið var yfir skattahugmyndir VG. Eignaskattshugmyndir - bitna verst á kynslóð ma og pa -sem tóku ekki þátt í ruglinu en voru dugleg að safna sér í sjóði og borga niður skuldir. Nú á að refsa þeim fyrir kaupæði unga fólksins. Ekki sanngjarnt.

Farið var yfir stjórnmálamenn. Margir hverjir algjörlega vanhæfir og vitlausir. Það er bara þannig og það vita það allir sem fylgjast eitthvað með Alþingi. Það er ekki hægt að treysta neinum. Sama í hvaða flokki.

Farið var yfir niðurskurðarhugmyndir. Ömmi að lúffa fyrir liðinu á Selfossi en loka á skurðstofu í Eyjum. Arfavitlaus hugmynd og algjörlega út í hött og dæmigerð fyrir Ögmund sem þorir ekki í læknamafíuna (ekki orðrétt haft eftir neinum en fólk almennt sammála um að þetta væri hið versta mál fyrir Eyjakonur og menn).

Farið var yfir dagskrá Alþingis. Besti hlutinn er í upphafi þegar óundirbúnu fyrirspurnirnar eru. Einmitt - verst að missa af því.

Farið var nokkuð lauslega í uppeldis og agamál á heimili einkadóttur. Fólk almennt sammála um að börn væru nokkuð vel upp alin en það yrði að setja mörk og leyfa ekki yngsta barni að stjórna heimili, matmálstímum, svefnvenjum, sjónvarpsdagskrá og baðferðum fjölskyldunnar.

Hressandi indeed.

20. mars 2009

Ef við bara gætum fengið svona snilling til að taka þátt í stjórnmálum hér



Takið eftir tilvísun í Idol.. Jamm það er ekki galið að líkja stjórnmálum við Idol (nema hann er að tala um Simon en SAMT!).
Margt sem hann er að tala um á algjörlega við hér. Ábyrgð til dæmis...

Blog Archive

Um mig